Orlofsréttur

Ávinnslutími orlofs er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert og er sumarleyfistíminn 2. maí til 15. september.

Samkomulag við atvinnurekanda ræður því hvenær orlof er tekið og á að verða við óskum starfsfólks, að svo miklu leyti sem unnt er vegna starfseminnar. Atvinnurekandi á að tilkynna eins fljótt og hægt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs hvenær orlof skuli hefjast. Því er góð regla að starfsfólk óski tímanlega eftir því hvenær það vilji fara í orlof.

Starfsfólk á rétt á 20 daga samfelldu orlofi á sumarleyfistíma sem er frá 2. maí til 15. september. Ef atvinnurekandi óskar eftir því að starfskraftur taki hluta orlofsins utan tímabilsins 2. maí til 15. september þá á að koma 25% lenging á þann hluta orlofsins sem tekin er utan fyrrnefnds tíma eða greiðsla sem nemur 25% á orlofslaunin. Aftur á móti ef starfsmaður óskar sjálfur eftir að taka orlof utan sumarleyfistímbilsins þá kemur ekki lenging á orlofið.

Þegar starfsfólk hættir störfum skal gera upp allt áunnið og ótekið orlof við starfslok.

Starfsfólk þarf að fylgjast með orlofsrétti sínum, gera strax athugasemdir ef einhver mistök koma upp, t.d. ef orlofsprósentan er ekki rétt.

Orlofsréttur

Frá og með 1. maí 2024 breyttist uppsöfnun orlofsréttinda fyrir tímabilið 1. maí 2024 til 30. apríl 2025 fyrir orlof sem tekið er sumarið 2025 sem hér segir:

Lágmarksorlof er 24 virkir dagar (tveir orlofsdagar ávinnast fyrir hvern unninn mánuð á orlofsárinu). Orlofslaun eru 10,17% af heildarlaunum.

  • Eftir 6 mánuði í sama fyrirtæki og náð hefur 22 ára aldri eða í 6 mánuði í sama fyrirtæki eftir framhaldsskólapróf skal starfskraftur eiga rétt á orlofi í 25 daga og skulu orlofslaun vera 10,64%
  • Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfskraftur hafa 25 daga orlof og skulu orlofslaun vera 10,64%.
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 26 dagar, skulu orlofslaun þá vera 11,11%
  • Eftir 5 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein skal starfskraftur hafa 27 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,59%.
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 28 dagar, skulu orlofslaun þá vera 12,07%
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 29 dagar, skulu orlofslaun þá vera 12,55%
  • Eftir 7 ár í sama fyrirtæki skal starfskraftur hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.

Ofangreindar orlofsprósentur tóku gildi þann 1. maí 2024 og skulu reiknast á laun ef orlof er reiknað um hver mánaðarmót á launaseðli og greidd í banka.
Skólafólk getur þurft að leggja fram staðfestingu á því að viðkomandi hafi lokið framhaldsskólaprófi.

Ef uppsöfnun orlofsréttinda á sér stað með orlofsstundum eða orlofsdögum þá er ofangreindur orlofsréttur til uppsöfnunar til töku sumarið 2025. Orlofsstundir á launaseðli hækka skv. ofangreindu.

Sumarið 2024 er orlofsrétturinn vegna uppsöfnunar á tímabilinu 1. maí 2023 til 30. apríl 2024 eftirfarandi:

  • Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfskraftur hafa 25 daga orlof og skulu orlofslaun vera 10,64%.
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 26 dagar, skulu orlofslaun þá vera 11,11%
  • Eftir 5 ár í sama fyrirtæki skal starfskraftur hafa 27 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,59%.
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 28 dagar, skulu orlofslaun þá vera 12,07%
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 29 dagar, skulu orlofslaun þá vera 12,55%
  • Eftir 10 ár í sama fyrirtæki skal starfskraftur hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.

Aðilar geta samið sín á milli um fleiri orlofsdaga og hækka þá orlofslaunin með tilliti til þess.

Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir tveggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið sannreyndur. Heimilt er að veita orlof umfram 20 daga að vetri nema um annað hafi samist.

2026

Frá og með 1. maí 2025 breytist orlofsréttur sem hér segir, gildir þessi réttur fyrir það orlof sem kemur til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2026.

Lágmarksorlof er 24 virkir dagar (tveir orlofsdagar ávinnast fyrir hvern unninn mánuð á orlofsárinu). Orlofslaun eru 10,17% af heildarlaunum.

  • Eftir 6 mánuði í sama fyrirtæki og náð hefur 22 ára aldri eða í 6 mánuði í sama fyrirtæki eftir framhaldsskólapróf skal eiga rétt á orlofi í 25 daga og skulu orlofslaun vera 10,64%
  • Eftir 5 ár í sömu starfsgrein skal starfskraftur hafa 26 daga orlof og skulu orlofslaun vera 11,11%.
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 27 dagar, skulu orlofslaun þá vera 11,59%.
  • Eftir 4 ár í sama fyrirtæki eða 10 ár í sömu starfsgrein skal starfskraftur hafa 28 daga orlof og skulu orlofslaun vera 12,07%.
  • Aðilar geta samið um að orlof sé á hverju orlofsári 29 dagar, skulu orlofslaun þá vera 12,55%
  • Eftir 6 ár í sama fyrirtæki skal starfskraftur hafa 30 daga orlof og skulu orlofslaun vera 13,04%.

Aðilar geta samið sín á milli um fleiri orlofsdaga og hækka þá orlofslaunin með tilliti til þess.

Áunninn réttur vegna starfa í sama fyrirtæki endurnýjast eftir tveggja ára starf hjá nýju fyrirtæki, enda hafi hann verið sannreyndur. Heimilt er að veita orlof umfram 20 daga að vetri nema um annað hafi samist.

Frí í stað desember- og orlofsuppbóta

Heimilt er með samkomulagi milli starfskrafts og atvinnurekanda að fella niður eða lækka orlofs- og/eða desemberuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn. Það frí skal veita í heilum eða hálfum dögum.