Hverjir eiga rétt á orlofsuppbót?
Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof eða 1.653,75 klst. á skrifstofu og 1.743,75 klst í verslun. Orlofsuppbót er reiknuð fyrir tímabilið 1. maí til 30. apríl ár hvert.
Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl EÐA eru í starfi fyrstu viku í maí.
Orlofsuppbót innifelur orlof, eru föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Ávinnsla orlofsuppbótar í fæðingarorlofi
Eftir eins árs starf hjá sama atvinnurekanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning orlofsuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
Frí gegn orlofsuppbót
Heimilt er með samkomulagi milli starfsmanns og atvinnurekanda að fella niður eða lækka orlofsuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins. Frí þetta skal veita í heilum eða hálfum dögum.