1. janúar 2027
Laun hækka um 3,50% en 23.750 kr. að lágmarki.
1. janúar 2026
Laun hækka um 3,50% en 23.750 kr. að lágmarki.
1. janúar 2025
Laun hækka um 3,50% en 23.750 kr. að lágmarki.
1. febrúar 2024
Laun hækka um 3,25% en 23.750 kr. að lágmarki.
1. nóvember 2022
Mánaðarlaun taka almennri hækkun um 6,75% þó að hámarki kr. 66.000.
Laun samkvæmt launatöxtum hækka hlutfallslega meira, sjá hér.
1. apríl 2022
Taxtar hækka um 10.500 kr á mánuði en almenn hækkun er 7.875 kr. á mánuði frá og með 1. apríl 2022, til greiðslu 1. maí 2022 vegna launaauka kjarasamnings.
1. janúar 2022
Taxtar hækka um 25 þús. kr. á mánuði en almenn hækkun er 17.250 kr. frá og með 1. janúar.
1. janúar 2021
Taxtar hækka um 24 þús. kr. en almenn hækkun er 15.750 kr. frá og með 1. janúar.
1. apríl 2020
Taxtar hækka um 24 þús. kr. en almenn hækkun er 18 þús. kr. frá og með 1. apríl.
1. apríl 2019
Öll laun hækka um 17 þús. kr. á mánuði frá og með 1. apríl.
1. maí 2018
VR og SA
Laun og launatengdir liðir hækka þann 1. maí 2018 um 3%. Sjá lágmarkstaxta VR og SA hér.
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, 171,15 klst. á mánuði (39,5 stundir á viku) fyrir 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir) skal vera 300.000 kr. frá 1. maí 2018. ATH að taka ber tillit til allra greiðslna þegar þessar lágmarkstekjur eru metnar s.s. allar bónus-, álags- og aukagreiðslur ber að taka með inn í samtöluna.
VR og FA
Laun og launatengdir liðir hækka þann 1. maí 2018 um 3%.
Lágmarkstaxtar hækka allir um 3%. Sjá lágmarkstaxta VR og FA hér.
1. maí 2017
VR og SA
Laun og launatengdir liðir hækka þann 1. maí 2017 um 4,5%
Lágmarkstaxtar hækka allir um 4,5% en byrjunarlaun hækka til viðbótar um kr. 1.700 á mánuði. Sjá lágmarkstaxta VR og SA hér.
Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, 171,15 klst. á mánuði (39,5 stundir á viku) fyrir 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir) skal vera 280.000 kr. frá 1. maí 2017.
VR og FA
Laun og launatengdir liðir hækka þann 1. maí 2017 um 4,5%.
Lágmarkstaxtar hækka allir um 4,5%. Sjá lágmarkstaxta VR og FA hér.
1. janúar 2016
Almenn launahækkun 6,2%, að lágmarki kr. 15.000 á mánaðarlaun fyrir dagvinnu, þ.m.t. hækkun annarra kjaratengdra liða en desember og orlofsuppbót.
1. maí 2015
Lágmarkslaunataxtar samkv. kjarasamningi hækkuðu um kr. 25.000.
Byrjunarlaun skv. öllum launatöxtum VR hækkuðu að auki um kr. 3.400
Launaþróunartrygging, á við um aðra en þá sem taka laun skv. launatöxtum:
Grunnhækkun launa er 7,2% fyrir starfsmann sem er með 300.000 kr. laun eða lægri og hóf störf hjá launagreiðanda fyrir 1. febrúar 2014.
Grunnhækkun launa starfsmanns sem er með hærri laun en 300.000 kr. fer stiglækkandi þannig að hún lækkar í jöfnum skrefum frá 300.000 kr. niður í 3,2% hjá starfsmanni með 750.000 kr. í laun eða meira. Hafi starfsmaður fengið hækkun eftir 2. febrúar 2014 dregst hún frá grunnhækkuninni (sjá töflu yfir prósentuhækkanir eftir launum).
Starfsmenn sem hófu störf frá 1. febrúar 2014 til loka desember 2014 hækka um 3,2%.
Starfsmenn sem hófu störf eftir 1. janúar 2015 eða síðar fá hækkun samkvæmt kjarasamningum árið 2016.
1. janúar 2014
Almenn launahækkun 2,8%, að lágmarki kr. 8.000 á mánuði, gildir um janúarlaun.
Sérstök hækkun launataxta undir kr. 230 þúsund á mánuði kr. 1.750 og hækka þeir launataxtar því um kr. 9.750 á mánuði.
1. febrúar 2013
Almenn launahækkun 3,25%, gildir um febrúarlaun.
Krónutöluhækkun á taxta kr. 11.000.
ATH - Þeir sem fá greitt skv. taxta: lágmarkstaxtar hækka um kr. 11.000. Þeir sem fá greitt yfir taxta: mánaðarlaun hækka um 3,25%.
1. febrúar 2012
Almenn launahækkun 3,5%, gildir um febrúarlaun.
Krónutöluhækkun á taxta kr. 11.000.
ATH - Þeir sem fá greitt skv. taxta: lágmarkstaxtar hækka um kr. 11.000. Þeir sem fá greitt yfir taxta: mánaðarlaun hækka um 3,5%.
1. júní 2011
Í kjarasamningum 2011 var samið um 4,25% almenna launahækkun þann 1. júní og hækkun lágmarkstaxta, kr. 12.000. Þá var samið um kr. 50.000 eingreiðslu auk orlofs.
1. júní 2010
Þann 1. júní var almenn 2,5% hækkun skv. kjarasamningum sem undirritaðir voru 2008 og samkomulagi um breytingar á samningnum sem undirritað var 2009.
1. nóvember 2009
Í kjarasamningum 2008 var samið um að þann 1. mars 2009 yrði launaþróunartryggingin 3,5%. Athugið að samkvæmt samkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá því í júní 2009 frestaðist þessi launaþróunartrygging til 1. nóvember 2009 og var viðmiðunartímabil hennar frá 1. janúar til 1. nóvember.
1. feb. 2008
Grunnhækkun launa er 5,5% fyrir starfsmenn sem voru í starfi hjá sama launagreiðanda 1. janúar 2007. Frá grunnhækkun dregst önnur sú launahækkun sem starfsmaður hefur fengið frá 2. janúar 2007 til og með gildistöku samnings VR og SA 2008, þ.m.t. vegna hækkunar kauptaxta. Ef starfsmaður hefur hafið störf á tímabilinu frá 2. janúar 2007 til loka september 2007 er grunnhækkun launa hans þá 4,5% en frá henni dregst önnur sú launahækkun sem hann hefur fengið frá þeim tíma er hann var ráðinn til og með gildistöku samnings VR og SA 2008, þ.m.t. vegna hækkunar kauptaxta.
1. janúar 2007
2,9% launahækkun
1. júlí 2006
5,5% launaþróunartrygging. Í samkomulagi um endurskoðun kjarasamnings segir: "Starfsmaður sem er í starfi í byrjun júlí 2006 og starfað hefur samfellt hjá sama vinnuveitanda frá júní 2005 skal tryggð að lágmarki 5,5% launahækkun á þeim tíma. Hafi launahækkun starfsmanns verið minni á framangreindu tímabili, skulu laun hans hækka frá 1. júlí 2006 að lágmarki um þann mismun sem upp á vantar."
Athugið, þeir sem fengu 2,5% launahækkun 1. janúar 2006 eiga þá að fá 3% þann 1. júlí 2006.
Einnig var samið um kr. 15.000 hækkun taxta frá 1. júlí 2006
1. janúar 2006
2,5% launahækkun
1. janúar 2005
3% launahækkun