Hver eiga rétt á desemberuppbót?
Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof eða 1.653,75 klst á skrifstofu eða 1.743,75 í verslun.
Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem verið hefur samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum EÐA eru í starfi fyrstu viku í desember.
Heimilt er með samkomulagi við starfskraft að uppgjörstímabil sé frá 1. desember til 30. nóvember ár hvert í stað almanaksárs.
Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Ávinnsla desemberuppbótar í fæðingarorlofi
Eftir eins árs starf hjá sama atvinnurekanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
Frí gegn desemberuppbót
Heimilt er með samkomulagi milli starfskrafts og atvinnurekanda að fella niður eða lækka desemberuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins. Frí þetta skal veita í heilum eða hálfum dögum.