VR skrifaði undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins sunnudaginn 17. febrúar 2008, og gildir hann til 30. nóvember 2010.
Þann 25. júní 2009 var skrifað undir samkomulag um breytingar á kjarasamningnum og fela þær í sér breytingar á launatöxtum, sjá hér upplýsingar um launataxta.
- Kjarasamningur VR og SA 2008 á pdf formi.
- Samkomulag um breytingar á kjarasamningnum á pdf formi.
-
Helstu atriði kjarasamnings VR og SA frá árinu 2008 eru sem hér segir, a.t.t. samkomulags um breytingar á samningnum frá 2009:
- Launaþróunartrygging, eða svokallaður baksýnisspegill, er 5,5% 2008 fyrir þá sem voru í starfi hjá sama atvinnurekanda frá 1. janúar 2007. Þetta þýðir að þeir sem hafa fengið launahækkun frá þeim tíma sem er minni en 5,5% fá það sem uppá vantar. Þeir starfsmenn sem hafa fengið meira fá hins vegar ekki hækkun. Starfsmenn sem hófu á störf á bilinu 2. janúar 2007 til 30. september 2007 fá samsvarandi launaþróunartryggingu en þó að hámarki 4,5%.
- Þann 1. nóvember 2009 verður launaþróunartryggingin 3,5%, viðmiðunartímabil hennar er frá 1. janúar til 1. nóvember.
- Þann 1. júní 2010 verður almenn 2,5% launahækkun.
- Launataxtar hækka um 18 þúsund krónur við undirskrift, um 13.500 krónur þann 1. mars 2009 og 6.500 krónur þann 1. janúar 2010. Athugið að samkvæmt samkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá því í júní 2009 er breyting á launatöxtum, sjá hér.
- Orlofsdögum fjölgar í 30 daga hjá þeim sem hafa unnið í sama fyrirtæki í 10 ár. Þetta ákvæði kom til framkvæmda frá og með árinu 2009. Þeir sem hafa unnið í 5 ár hjá sama fyrirtæki fá 27 orlofsdaga frá og með árinu 2010.
- Slysatrygging er víðtækari í þessum samningi en þeim fyrri, vátryggingin nær m.a. til 18 ára barna í stað 17 ára áður, hún gildir í ferðum á vegum atvinnurekenda innanlands og utan og nær til slysa sem verða við íþróttaiðkun. Örorku- og dánarbætur hækka mikið.
- Veikindadagar vegna veikinda barna verða 12 í staðinn fyrir 7 og 10 daga eins og nú er.
- Framlag vinnuveitenda í starfsmenntasjóð hækkar úr 0,15% í 0,20%.
- Nýr endurhæfingarsjóður verður settur á laggirnar og munu atvinnurekendur greiða til hans 0,13% af launum.
Kjarasamningur VR og FA 2008
Þann 17. apríl var skrifað undir kjarasamning milli VR og Félags atvinnurekenda, áður FÍS. Gildistími er frá 1. febrúar 2008 til 30. nóvember 2010. Í júní 2009 var skrifað undir samkomulag um breytingar á kjarasamningum og fela þær í sér breytingar á launatöxtum VR og FÍS. Samningurinn á vefnum hefur verið uppfærður í samræmi við þessar breytingar.
-
Helstu atriði kjarasamnings VR og Félags atvinnurekenda, áður FÍS, frá árinu 2008 eru sem hér segir:
Launaþróunartrygging
- Samið var um launaþróunartryggingu, sem einnig er kölluð baksýnisspegill. Launaþróunartryggingin er 8,6% fyrir þá starfsmenn sem voru í starfi hjá sama launagreiðanda 1. október 2006 og eru enn í starfi. Fyrir starfsmenn sem hófu störf hjá sínum launagreiðanda frá 2. október 2006 til 1. janúar 2007 og eru enn í starfi er tryggingin 5,5% en þeir sem hófu störf hjá vinnuveitanda sínum frá 2. janúar til 30. september 2007 og eru enn í starfi fá 4,5% launaþróunartryggingu. Þann 1. mars 2009 verður launaþróunartryggingin 3,5%.Athugið að samkvæmt samkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá því í júní 2009 frestast þessi launaþróunartrygging til 1. nóvember 2009 og verður viðmiðunartímabil hennar frá 1. janúar til 1. nóvember.
Almenn launahækkun
- Þann 1. janúar árið 2010 verður almenn 2,5% launahækkun.
Uppbætur hækka
- Desemberuppbótin sem var í samningnum skiptist nú í desember- og orlofsuppbót, árið 2008 verður desemberuppbót kr. 50.000 og orlofsuppbót kr. 18.400.
Lengra orlof
- Orlofsdögum fjölgar í 30 daga hjá þeim sem hafa unnið í sama fyrirtæki í 10 ár. Þetta ákvæði kemur til framkvæmda frá og með árinu 2009 en í ár er orlofið 29 dagar hjá þessum starfsmönnum. Þeir sem hafa unnið í 5 ár hjá sama fyrirtæki fá 26 orlofsdaga í ár og 27 á næsta ári.
Laun í erlendum gjaldmiðli
- Heimilt er að greiða hluta fastra mánaðarlauna í erlendum gjaldmiðli eða tengja hluta fastra mánaðarlauna við gengi erlends gjaldmiðils með samkomulagi starfsmanns og atvinnurekanda.
Víðtækari slysatryggingar
- Slysatrygging er víðtækari í þessum samningi en þeim fyrri. Vátryggingin nær m.a. til 18 ára barna í stað 17 ára áður og nær hún nú í fyrsta skipti til „ungmenna“ á aldrinum 18-22 ára sem áttu sama lögheimili og hinn látni og voru sannanlega á framfærslu hans. Vátryggingin gildir í ferðum á vegum atvinnurekenda innanlands og utan og nær einnig til slysa sem verða við íþróttaiðkun. Örorku- og dánarbætur hækka mikið.
Veikindi barna
- Veikindadagar vegna veikinda barna verða 12 á ári.
Endurskoðunarnefnd
- Samningsaðilar skipa tvo fulltrúa hvort í nefnd sem skal ákveða í byrjun febrúar 2009 hvort samningnum verður framlengt fyrir tímabilið 1. mars 2009 til 30. nóvember 2010. Forsendur fyrir framlengingu samningsins eru:
- að kaupmáttur launa hafi haldist eða aukist á samningstímanum,
- að verðbólga hafi farið lækkandi, þ.e. að 12 mánaða verðbólga í desember 2008 sé lægri en 5,5% og að verðbólga á 6 mánaða tímabilinu ágúst 2008 – janúar 2009 sé innan við 3,8% á ársgrundvelli.