Launainnheimta

Félagsfólk VR getur leitað til félagsins vegna ýmissa mála sem m.a. varða ágreining við atvinnurekanda, ef fyrirtækið hættir skyndilega starfsemi eða fer í þrot.
Nauðsynlegt er að bregðast við og leita til sérfræðings á kjaramálasviði VR sem allra fyrst. Á þessari síðu eru upplýsingar sem mikilvægt er að þú kynnir þér, standir þú frammi fyrir vanda af því tagi sem lýst er hér að ofan.

Einnig getur þú leitað til kjaramálasviðs VR í síma 510 1700 eða sent fyrirspurn til vr@vr.is. Sjá einnig mikilvægar upplýsingar um atvinnuleysisbætur og almennt um uppsögn og uppsagnarfrest.

Ef ágreiningur VR félaga og atvinnurekanda snýst um vangreidd laun aðstoðar VR við innheimtu á slíkum launakröfum. Félagsfólki sem leitar eftir slíkri aðstoð er bent á eftirfarandi:

  • Í upphafi máls er mikilvægt að gefa ítarlegar upplýsingar um stöðu mála. Það sem fram þarf að koma er upphaf vinnusambands, við hvað var starfað, starfsstöð, starfshlutfall, umsamin launakjör og lok vinnusambands, ef við á.
  • Mikilvægt er að koma öllum skriflegum gögnum til VR strax í upphafi, s.s. ráðningarsamningi, launaseðlum, tímaskýrslum, uppsagnarbréfi, læknisvottorði og öðru þess háttar því það auðveldar og flýtir fyrir vinnslu málsins.
  • Aðstoð kjaramálasviðs VR felur í sér útreikning á kröfu ásamt hefðbundnum innheimtustörfum, félagsfólki að kostnaðarlausu. Kjaramálasvið, í samráði við lögfræðing félagsins, áskilur sér þó rétt til að vísa kröfum VR félaga frá, ef vafi þykir leika á réttmæti þeirra.
  • Rétt er að athuga hvort launagreiðandi hafi staðið skil á lífeyrissjóðs‐ og stéttarfélagsgjöldum starfskrafts. Ef svo er ekki verður að setja slíka kröfu i innheimtu hjá viðkomandi lífeyrissjóði.
  • Ef atvinnurekandi, sem kröfu er stefnt að, verður gjaldþrota meðan á innheimtuferli stendur er kröfunni lýst í þrotabúið (sjá hér). Í þeim tilfellum þegar launakrafan tekur yfir langt tímabil getur gjaldþrot haft töluverð áhrif á innheimtu hennar.
  • Ef þrotabú reynist eignalaust tryggir Ábyrgðasjóður launa einungis launakröfur vegna síðustu þriggja mánaða í starfi auk allt að þremur mánuðum á uppsagnarfresti. Eldri kröfur falla því utan ábyrgðar og fást ekki greiddar. Nánari upplýsingar á vef Ábyrgðasjóðs launa hér.

Ágreiningsmálum sem ekki er hægt að leysa með hefðbundnu innheimtuferli er vísað til dómstóla. Lögfræðingur VR annast málareksturinn og er það félagsfólki að kostnaðarlausu. Hins vegar ber að árétta að ef mál VR félaga tapast fyrir dómi getur lögmannskostnaður gagnaðila fallið á VR félagann og tekur VR ekki þátt í þeim kostnaði.

Lokun fyrirtækja

Sú staða getur komið upp að fyrirtæki hætti rekstri með mjög skömmum eða engum fyrirvara. Við slíkar aðstæður getur starfsfólk átt inni laun og/eða rétt til launa á uppsagnarfresti. Mikilvægt er að fólk leiti til kjaramálasviðs VR sem fyrst eftir að fyrirtæki lokar vegna launakrafna sem það á inni og haldi til haga launaseðlum, ráðningarsamningi og öðrum gögnum sem sýna fram á ráðningarsamband.

  • Skyndileg lokun fyrirtækis þýðir oftast að starfsfólki gefst ekki kostur að vinna hjá fyrirtækinu út uppsagnarfrest sinn. Uppsagnarfrestur er í samræmi við starfstíma hjá fyrirtækinu:
    1 ‐ 3 mánuðir í starfi = uppsagnarfrestur er 1 vika
    3 ‐ 6 mánuðir í starfi = uppsagnarfrestur er 1 mánuður, bundinn við mánaðamót
    6 mánuðir eða meira í starfi = uppsagnarfrestur er 3 mánuðir, bundinn við mánaðamót
  • Ef starfskrafti gefst ekki kostur á sínu starfi hjá fyrirtækinu á uppsagnarfresti á hann rétt á launum fyrir þann tíma frá fyrirtækinu. Ef um áður ógreidda launaskuld er að ræða á hann jafnframt kröfu á hendur fyrirtækinu vegna hennar.
  • Ef starfskraftur hefur starf hjá nýju fyrirtæki innan uppsagnarfrests síns hjá gamla fyrirtækinu fellur krafa til launa á uppsagnarfresti niður frá þeim degi að telja. Ef laun eru hinsvegar lægri hjá hinu nýja fyrirtæki á hann rétt á greiðslu sem nemur mismuninum.
  • Starfsfólk á ekki rétt á atvinnuleysisbótum meðan uppsagnarfrestur varir. Sú staða breytist hinsvegar ef fyrirtæki er úrskurðað gjaldþrota, þá myndast greiðsluskylda hjá Ábyrgðasjóði launa vegna þess tímabils sem viðkomandi hefur stimplað sig.