Skv. rannsóknum er það starfsánægjan sem hefur mesta þýðingu í því sambandi hve lengi maður vill sinna starfi sínu. Rannsóknin var gerð meðal 2400 félagsfólks HK í Danmörku. Níu af hverjum tíu félögum segja að það sem skiptir mestu máli sé að þeir dafni félagslega og faglega.
Fyrir eldra starfsfólk hefur það mikla þýðingu fyrir vellíðan í starfi að finn að það sé metið að verðleikum. Fólk þarf að finna að þeirra sé þörf og að bæði stjórnendur og starfsfélagar meti mann mikils. Þetta er lykillinn að því að halda í eldra starfsfólk. Ef atvinnurekandi segir við starfskraftinn að vinnustaðurinn geti hvorki verið án hans né kunnáttu hans er það næstum regla að starfskrafturinn kýs að halda áfram. Rannsóknin gefur til kynna að 41% af þeim sem eru á eftirlaunum hefðu beðið með að draga sig í hlé frá vinnumarkaði ef þeim hefði liðið betur á vinnustaðnum.
Vellíðan á vinnustað snertir ekki bara sambandið við stjórnendur og samstarfsfólk. Streita á vinnustað og tilfinningin varðandi það að fylgja hinum yngri eftir hefur einnig mikil áhrif. Stundum gerist það við komu nýs yfirmanns að starfskraftur þarf að breyta starfsháttum sínum algerlega. Starfskraftinum, sem hefur ef til vill unnið lengi með sama hætti, finnst hann ekki hafa lengur áhrif á starfið sitt og kýs að hætta. Hann hættir ósáttur og öllum líður illa með það. Oft er þetta er nauðsynlegt, vinnuumhverfi breytist í nútímatækni og nýjar aðferðir leysa þær eldri af. Það er hinsvegar ljóst að það skapar mikla möguleika fyrir fyrirtæki ef stjórnendur átta sig á að skapa vettvang fyrir þá eldri.
Það eru mikil verðmæti fólgin í eldra starfsfólki. Það er hollt og hefur þroskað mikla hæfni og reynslu. Það hefur góða þekkingu á menningu vinnustaðarins sem það getur miðlað til yngra starfsfólks og það er mikilvægt fyrir jafnvægi á vinnustaðnum.
Það þarf hins vegar að ríkja gagnkvæm virðing milli eldra og yngra starfsfólks og hafa ber í huga að báðir hópar hafa sitthvað til málanna að leggja, oftast jafn mikilvægt fyrir störfin. Þeir þættir sem auðvelda eldra fólki að vinna lengur geta verið styttri vinnutími, auka frídagar, eða einhver önnur sérkjör. Rúmlega helmingur þeirra sem tóku þátt í könnuninni töldu að aðlögun að starfslokum á vinnustöðum væri mikilvæg eða mjög mikilvæg.
Birt í 3. tbl. VR blaðsins 2021.