Um könnunina
Lykilþættirnir níu
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í innra starfsumhverfi fyrirtækja og má sjá þróun þeirra í töflunni hér að neðan. Gefin er einkunn fyrir hvern lykilþátt, frá einum og upp í fimm, og saman mynda þær heildareinkunn, annars vegar þeirra fyrirtækja sem birt eru á listum og svo heildareinkunn allra svarenda í könnuninni. Vægi þáttanna í heildareinkunn er misjafnt, stjórnun fyrirtækisins vegur þyngst. Sjá umfjöllun um framkvæmdina hér fyrir neðan.
Lykilþættirnir níu

Stjórnun
Telur starfsfólk að vinnustaðnum sé vel stjórnað og ber það traust til yfirmanna?

Starfsandi
Hvernig kemur starfsfólki saman við aðra á vinnustaðnum?

Launakjör
Er starfsfólk sátt við laun sín?

Vinnuaðstaðan
Öryggi, tækni, lýsing, hljóðvist, matar- og kaffiaðstaða o.s.frv.

Sveigjanleiki
Svigrúm til að taka frí, útrétta og samræma vinnu og fjölskyldulíf.

Sjálfstæði í starfi
Frumkvæði í starfi, yfirsýn, markmið og sjálfstraust.

Ímynd fyrirtækisins
Upplifun starfsfólks af almennri umræðu um fyrirtækið.

Ánægja og stolt
Er starfsfólk stolt af vinnustaðnum og líður þeim vel í vinnunni?

Jafnrétti
Hafa öll jöfn tækifæri, óháð aldri, kyni, uppruna, kynhneigð, trúar- eða lífsskoðunum?
Heildareinkunnin sýnir viðhorf starfsfólks almennt til vinnustaða sinna, meðaltal allra þáttanna níu sem sjá má að ofan. Hér má sjá hvaða spurningar falla undir hvern þátt. Heildareinkunn í töflunni hér að neðan er óháð stærð fyrirtækjanna og byggir á svörum allra sem tóku þátt í könnuninni, óháð því hvort fyrirtæki svarenda komust inn á lista fyrirtækjanna.
Þættirnir sem mynda mælingu á Fyrirtæki ársins 2025
-
- Ég fæ stuðning og hvatningu frá næsta yfirmanni mínum.
- Næsti yfirmaður minn virðir starfsfólkið mikils.
- Næsti yfirmaður minn er sanngjarn við starfsfólk.
- Ég get leitað til næsta yfirmanns míns ef ég þarf á því að halda.
- Næsti yfirmaður minn sér um að ég hafi möguleika til að þroska hæfileika mína.
- Næsti yfirmaður minn bætir starfsaðstæður þegar þörf er á.
- Það er skýrt til hvers næsti yfirmaður minn ætlast til af mér.
- Á mínum vinnustað er starfsfólki hrósað þegar það stendur sig vel.
- Hversu vel eða illa telur þú að þínum vinnustað sé stjórnað?
- Ég ber fullt traust til stjórnenda fyrirtækisins.
-
- Mér finnst starfsandinn venjulega vera afslappaður og óþvingaður.
- Samskipti eru opin og hispurslaus meðal samstarfsfólks míns.
- Mér kemur vel saman við samstarfsfólk mitt.
-
- Ánægja með launakjör.
- Laun starfsfólks stofnunarinnar eru ákveðin af sanngirni.
- Telur þú atvinnurekanda þinn veita betri, svipuð eða verri launakjör en gert er á öðrum sambærilegum vinnustöðum?
-
- Ánægja með vinnuaðstöðu, þ.e. vinnu- eða skrifstofurými.
- Ánægja með lýsingu.
- Ánægja með loftræstingu.
- Ánægja með hljóðvist (ánægja eða óánægja með hljóð í rýminu).
- Ánægja með matar- og kaffiaðstöðu.
- Ánægja með öryggi á vinnustað.
- Ánægja með tölvu- og tækjabúnað.
-
- Ég get farið úr vinnu með litlum fyrirvara til að sinna aðkallandi erindum í einkalífi mínu.
- Ég hef svigrúm til að útrétta í vinnutímanum þegar nauðsyn krefur.
- Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
- Ég á auðvelt með að samræma vinnu og fjölskyldulíf.
- Ég á auðvelt með að taka sumarfrí/önnur frí á þeim tíma sem mér hentar.
-
- Mér finnst ég hafa góð tök á öllum þáttum starfs míns.
- Mér finnst ég hafa næga yfirsýn yfir alla þá þætti sem krafist er af mér í starfi.
- Markmiðin með starfi mínu eru skýr.
- Þegar á heildina er litið hef ég mikil áhrif á hvernig starf mitt er unnið.
-
- Þegar fyrirtækið sem ég starfa hjá ber á góma er sú umræða yfirleitt vinsamleg.
- Þegar á heildina er litið hafa viðskiptavinir jákvæða afstöðu til fyrirtækisins.
- Þegar á heildina er litið er fyrirtækið sem ég starfa hjá talin vera mjög traust.
-
- Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu.
- Á heildina litið líður mér vel í starfi mínu.
- Ég get mælt með vinnustaðnum sem góðum vinnustað við vini mína.
- Ég er stolt(ur) af fyrirtækinu sem ég starfa hjá.
-
- Á mínum vinnustað er lögð áhersla á jafnrétti kynjanna.
- Á mínum vinnustað er skýr stefna um jafnrétti kynja.
- Á mínum vinnustað finnst mér karlar og konur fá sömu tækifæri til starfsframa.
- Á mínum vinnustað er fólki ekki mismunað (t.d. eftir aldri, kyni, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga (t.d. hvað varðar aldur, kyn, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað eru bæði konur og karlar í ábyrgðarstöðum.
Hugmyndafræðin
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er viðhorf starfsfólks til lykilþátta í starfsumhverfi vinnustaðarins metið. Könnunin er vettvangur fyrir félagsfólk til að koma skoðunum sínum á framfæri og láta stjórnendur vita af því sem vel er gert og hvað betur má gera. Niðurstöðurnar eru stjórnendum hafsjór upplýsinga og hagnýtur leiðarvísir um hvort úrbóta sé þörf og hvar. Þær sýna ekki einungis hver staða fyrirtækisins er í augum starfsmanna heldur einnig hver staða þess er í samanburði við önnur fyrirtæki á vinnumarkaði.
Virkjum mannauðinn
Hugmyndafræðin sem býr að baki Fyrirtæki ársins er sú að innra starfsumhverfi fyrirtækja hafi gríðarleg áhrif á afkomu þeirra ekki síður en ytri rekstrarskilyrði. Þau fyrirtæki sem einhverra hluta vegna virkja mannauð sinn illa eða alls ekki geti hvorki fært sér hagstæð ytri skilyrði í nyt né brugðist við neikvæðum rekstrarskilyrðum eða utanaðkomandi áföllum.
Innra starfsumhverfi vísar í þessu samhengi fyrst og fremst til þeirra viðhorfa sem eru ríkjandi meðal starfsfólks. Hvaða augum lítur það starf sitt, starfsaðstöðu, samstarfsmenn, yfirmenn og stefnu og stjórnun fyrirtækisins? Hvert er viðmót yfirmanna í garð undirmanna sinna? Því neikvæðari sem þessi viðhorf eru þeim mun lélegra er innra starfsumhverfi fyrirtækisins.
Þetta má mæla á marga vegu. Í könnun VR byggja niðurstöðurnar á níu lykilþáttum: stjórnun (sem áður hét trúverðugleiki stjórnenda), starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd fyrirtækis, ánægju og stolti og jafnrétti sem kom fyrst til árið 2016. Þessir þættir endurspegla það traust sem ríkir í samskiptum innan fyrirtækisins, hversu stolt eða hreykið starfsfólkið almennt er af starfi sínu og fyrirtækinu sem það starfar hjá, þá virðingu sem yfirmenn bera fyrir starfsfólki sínu og það andrúmsloft sem ríkir á vinnustaðnum.
Ánægt starfsfólk = aukin gæði
Fyrirtæki sem telst eftirsóknarverður vinnustaður getur valið úr hæfasta starfsfólkinu og það nýtur góðs af mikilli launþegatryggð. Framleiðsla og þjónusta aukast að gæðum, þar sem samlegðaráhrifin eru þau að allt starfsfólk fyrirtækisins leggur sig fram um að ná árangri. Gott starfsumhverfi dregur úr álagi og streitu og eykur almenna starfsánægju sem stuðlar aftur að því að veikindadögum fækkar. Starfsfólkið sýnir frumkvæði í starfi sem ýtir jafnframt undir nýjungar í rekstri fyrirtækisins og árangursríka þróun. Fyrir vikið verður fyrirtækið sveigjanlegra gagnvart breytingum í rekstrarumhverfi þess eða breyttum samkeppnisaðstæðum. Ímynd fyrirtækisins verður sterk, bæði inn á við gagnvart starfsfólkinu og út á við og fyrirtækið nýtur jafnframt góðs af jákvæðu umtali.
Könnunin segir hvað þarf að gera betur
Fyrirtæki ársins gerir stjórnendum kleift að nálgast innra starfsumhverfi sitt með markvissum og árangursríkum hætti. Í fyrsta lagi eru niðurstöðurnar áreiðanlegt mælitæki á frammistöðu fyrirtækisins sem vinnustaðar. Þær segja til um hvort og þá hvaða vanda er við að etja og um leið hvaða sóknarfæri það á. Í öðru lagi veitir Fyrirtæki ársins mikilvægan samanburð á milli ára. Í þriðja lagi fela skilgreiningar Fyrirtækis ársins í sér öflug verkfæri sem stjórnendur geta beitt í samvinnu við starfsfólk til að gera vinnustaðinn eftirsóknarverðan.
Öflugt tæki fyrir VR
Niðurstöður könnunarinnar gefa VR skýra og viðamikla mynd af viðhorfum félagsmanna til vinnustaða sinna. Þessar upplýsingar nýtast félaginu í sinni kjarabaráttu, gefa VR færi á að meta hvaða áherslur skuli leggja í kröfugerð kjarasamninga og hvort breyta þurfi viðhorfi stjórnenda og / eða hins opinbera. Könnunin rennir þannig fleiri stoðum undir starfsemi og þjónustu félagsins.