Lykilþættirnir níu
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í innra starfsumhverfi fyrirtækja og má sjá þróun þeirra í töflunni hér að neðan. Gefin er einkunn fyrir hvern lykilþátt, frá einum og upp í fimm, og saman mynda þær heildareinkunn, annars vegar þeirra fyrirtækja sem birt eru á listum og svo heildareinkunn allra svarenda í könnuninni. Vægi þáttanna í heildareinkunn er misjafnt, stjórnun fyrirtækisins vegur þyngst (Sjá umfjöllun um framkvæmdina).
Lykilþættirnir níu
![](/media/u34p52hr/stjornun.png?width=100)
Stjórnun
Telur starfsfólk að vinnustaðnum sé vel stjórnað og ber það traust til yfirmanna?
![](/media/3etlo0lg/starfsandi.png?width=100)
Starfsandi
Hvernig kemur starfsfólki saman við aðra á vinnustaðnum?
![](/media/3qin45kx/launakjor.png?width=100)
Launakjör
Er starfsfólk sátt við laun sín?
![](/media/zfspuczb/vinnuadstada.png?width=100)
Vinnuaðstaðan
Öryggi, tækni, lýsing, hljóðvist, matar- og kaffiaðstaða o.s.frv.
![](/media/ttpfhyst/sveigjanleiki.png?width=100)
Sveigjanleiki
Svigrúm til að taka frí, útrétta og samræma vinnu og fjölskyldulíf.
![](/media/vcmp4q2l/sjalfstaedi-starfi.png?width=100)
Sjálfstæði í starfi
Frumkvæði í starfi, yfirsýn, markmið og sjálfstraust.
![](/media/hz2ltyzl/imynd-fyrirtaekisins.png?width=100)
Ímynd fyrirtækisins
Upplifun starfsfólks af almennri umræðu um fyrirtækið.
![](/media/gqxiyzee/anaegja-stolt.png?width=100)
Ánægja og stolt
Er starfsfólk stolt af vinnustaðnum og líður þeim vel í vinnunni?
![](/media/mrygezhb/jafnretti.png?width=100)
Jafnrétti
Hafa öll jöfn tækifæri, óháð aldri, kyni, uppruna, kynhneigð, trúar- eða lífsskoðunum?
Heildareinkunnin sýnir viðhorf starfsfólks almennt til vinnustaða sinna, meðaltal allra þáttanna níu sem sjá má að ofan. Hér má sjá hvaða spurningar falla undir hvern þátt. Heildareinkunn í töflunni hér að neðan er óháð stærð fyrirtækjanna og byggir á svörum allra sem tóku þátt í könnuninni, óháð því hvort fyrirtæki svarenda komust inn á lista fyrirtækjanna.
Þættirnir sem mynda mælingu á Fyrirtæki ársins 2024
-
- Ég fæ stuðning og hvatningu frá næsta yfirmanni mínum.
- Næsti yfirmaður minn virðir starfsfólkið mikils.
- Næsti yfirmaður minn er sanngjarn við starfsfólk.
- Ég get leitað til næsta yfirmanns míns ef ég þarf á því að halda.
- Næsti yfirmaður minn sér um að ég hafi möguleika til að þroska hæfileika mína.
- Næsti yfirmaður minn bætir starfsaðstæður þegar þörf er á.
- Það er skýrt til hvers næsti yfirmaður minn ætlast til af mér.
- Á mínum vinnustað er starfsfólki hrósað þegar það stendur sig vel.
- Hversu vel eða illa telur þú að þínum vinnustað sé stjórnað?
- Ég ber fullt traust til stjórnenda fyrirtækisins.
-
- Mér finnst starfsandinn venjulega vera afslappaður og óþvingaður.
- Samskipti eru opin og hispurslaus meðal samstarfsfólks míns.
- Mér kemur vel saman við samstarfsfólk mitt.
-
- Ánægja með launakjör.
- Laun starfsfólks stofnunarinnar eru ákveðin af sanngirni.
- Telur þú atvinnurekanda þinn veita betri, svipuð eða verri launakjör en gert er á öðrum sambærilegum vinnustöðum?
-
- Ánægja með vinnuaðstöðu, þ.e. vinnu- eða skrifstofurými.
- Ánægja með lýsingu.
- Ánægja með loftræstingu.
- Ánægja með hljóðvist (ánægja eða óánægja með hljóð í rýminu).
- Ánægja með matar- og kaffiaðstöðu.
- Ánægja með öryggi á vinnustað.
- Ánægja með tölvu- og tækjabúnað.
-
- Ég get farið úr vinnu með litlum fyrirvara til að sinna aðkallandi erindum í einkalífi mínu.
- Ég hef svigrúm til að útrétta í vinnutímanum þegar nauðsyn krefur.
- Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
- Ég á auðvelt með að samræma vinnu og fjölskyldulíf.
- Ég á auðvelt með að taka sumarfrí/önnur frí á þeim tíma sem mér hentar.
-
- Mér finnst ég hafa góð tök á öllum þáttum starfs míns.
- Mér finnst ég hafa næga yfirsýn yfir alla þá þætti sem krafist er af mér í starfi.
- Markmiðin með starfi mínu eru skýr.
- Þegar á heildina er litið hef ég mikil áhrif á hvernig starf mitt er unnið.
-
- Þegar fyrirtækið sem ég starfa hjá ber á góma er sú umræða yfirleitt vinsamleg.
- Þegar á heildina er litið hafa viðskiptavinir jákvæða afstöðu til fyrirtækisins.
- Þegar á heildina er litið er fyrirtækið sem ég starfa hjá talin vera mjög traust.
-
- Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu.
- Á heildina litið líður mér vel í starfi mínu.
- Ég get mælt með vinnustaðnum sem góðum vinnustað við vini mína.
- Ég er stolt(ur) af fyrirtækinu sem ég starfa hjá.
-
- Á mínum vinnustað er lögð áhersla á jafnrétti kynjanna.
- Á mínum vinnustað er skýr stefna um jafnrétti kynja.
- Á mínum vinnustað finnst mér karlar og konur fá sömu tækifæri til starfsframa.
- Á mínum vinnustað er fólki ekki mismunað (t.d. eftir aldri, kyni, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga (t.d. hvað varðar aldur, kyn, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað eru bæði konur og karlar í ábyrgðarstöðum.
Happdrættið
Vinningsnúmerin eru:
407660, 453657, 439209