Fyrirtæki ársins 2024

Niðurstöður úr könnun VR um Fyrirtæki ársins liggja nú fyrir. Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju, og fleira (sjá nánar um aðferðafræði hér). Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu, enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra.

Þrjú efstu fyrirtækin í hverjum stærðarflokki eru útnefnd Fyrirtæki ársins 2024 og eru því níu í heildina. Eingöngu fyrirtæki sem bjóða öllu starfsfólki sínu þátttöku í könnuninni koma til greina.

Hér má sjá lista í stafrófsröð yfir Fyrirtæki ársins 2024, í hverjum stærðarflokki fyrir sig. VR óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Stór fyrirtæki

Garri

Límtré Vírnet

NetApp

Meðalstór fyrirtæki

Hringdu

Reykjafell

Toyota á Íslandi

Lítil fyrirtæki

Arango

Kjólar og konfekt

Mjúk Iceland