Lykilþættirnir níu
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í innra starfsumhverfi fyrirtækja og má sjá þróun þeirra í töflunni hér að neðan. Gefin er einkunn fyrir hvern lykilþátt, frá einum og upp í fimm, og saman mynda þær heildareinkunn, annars vegar þeirra fyrirtækja sem birt eru á listum og svo heildareinkunn allra svarenda í könnuninni. Vægi þáttanna í heildareinkunn er misjafnt, stjórnun fyrirtækisins vegur þyngst (Sjá umfjöllun um framkvæmdina).
Lykilþættirnir níu
Stjórnun
Telur starfsfólk að vinnustaðnum sé vel stjórnað og ber það traust til yfirmanna?
Starfsandi
Hvernig kemur starfsfólki saman við aðra á vinnustaðnum?
Launakjör
Er starfsfólk sátt við laun sín?
Vinnuaðstaðan
Öryggi, tækni, lýsing, hljóðvist, matar- og kaffiaðstaða o.s.frv.
Sveigjanleiki
Svigrúm til að taka frí, útrétta og samræma vinnu og fjölskyldulíf.
Sjálfstæði í starfi
Frumkvæði í starfi, yfirsýn, markmið og sjálfstraust.
Ímynd fyrirtækisins
Upplifun starfsfólks af almennri umræðu um fyrirtækið.
Ánægja og stolt
Er starfsfólk stolt af vinnustaðnum og líður þeim vel í vinnunni?
Jafnrétti
Hafa öll jöfn tækifæri, óháð aldri, kyni, uppruna, kynhneigð, trúar- eða lífsskoðunum?
Heildareinkunnin sýnir viðhorf starfsfólks almennt til vinnustaða sinna, meðaltal allra þáttanna níu sem sjá má að ofan. Hér má sjá hvaða spurningar falla undir hvern þátt. Heildareinkunn í töflunni hér að neðan er óháð stærð fyrirtækjanna og byggir á svörum allra sem tóku þátt í könnuninni, óháð því hvort fyrirtæki svarenda komust inn á lista fyrirtækjanna.
2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Heildareinkunn | 4,07 | 4,07 | 4,07 | 4,09 | 4,10 | 4,14 | 4,12 | 4,18 | 4,18 | 4,26 | 4,26 |
Stjórnun | 4,01 | 4,03 | 4,03 | 4,05 | 4,12 | 4,16 | 4,12 | 4,21 | 4,20 | 4,29 | 4,30 |
Starfsandi | 4,32 | 4,31 | 4,32 | 4,33 | 4,32 | 4,35 | 4,32 | 4,36 | 4,35 | 4,40 | 4,44 |
Launakjör | 3,19 | 3,20 | 3,20 | 3,20 | 3,28 | 3,31 | 3,30 | 3,36 | 3,40 | 3,52 | 3,45 |
Vinnuskilyrði | 4,02 | 4,03 | 4,04 | 4,03 | 3,94 | 4,00 | 3,98 | 4,06 | 4,04 | 4,13 | 4,17 |
Sveigjanleiki vinnu | 4,36 | 4,36 | 4,36 | 4,36 | 4,33 | 4,38 | 4,36 | 4,40 | 4,39 | 4,36 | 4,37 |
Sjálfstæði í starfi | 4,31 | 4,30 | 4,32 | 4,32 | 4,31 | 4,32 | 4,29 | 4,32 | 4,34 | 4,37 | 4,39 |
Ímynd fyrirtækis | 4,09 | 4,15 | 4,15 | 4,18 | 4,19 | 4,21 | 4,17 | 4,24 | 4,27 | 4,31 | 4,35 |
Ánægja & stolt | 4,22 | 4,21 | 4,21 | 4,22 | 4,23 | 4,26 | 4,21 | 4,28 | 4,29 | 4,35 | 4,35 |
Jafnrétti | 4,16 | 4,22 | 4,28 | 4,38 | 4,36 | 4,40 | 4,45 |
Heildareinkunn í könnuninni er sú sama og á síðasta ári, en þá mældist umtalsverð hækkun frá árinu 2020. Einkunnin í ár er 4,26 af fimm mögulegum en var 4,18 árið 2020. Á síðasta áratug hefur einkunnin hækkað mikið, úr 4,07 árið 2012. Stjórnendur gefa marktækt hærri einkunn en allar aðrar stéttir og þeir sem lokið hafa framhaldsnámi á háskólastigi einnig. Heildareinkunn er langhæst hjá fyrirtækjum í fjármálum og annarri sérhæfðri þjónustu nú sem endranær. Lægst er hún í samgöngufyrirtækjum, flutningum og ferðaþjónustu. Þá er heildareinkunn marktæk hærri í minni fyrirtækjum en þeim stærri.
Einkunn fyrir stjórnun hefur hækkað mikið á síðasta áratug en einkum þó á síðustu fjórum árum, árið 2018 var einkunn fyrir stjórnun 4,12 en er 4,30 í ár sem er sú sama og í fyrra. Hér er mikill munur þegar litið er til starfs og menntunar. Þeir sem hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi gefa marktækt hærri einkunn en aðrir menntahópar og stjórnendur gefa hærri einkunn en allar aðrar stéttir.
Einkunn fyrir starfsanda er mjög svipuð í ár og síðustu ár, það eru ekki miklar sveiflur í þessari einkunnagjöf. Það er hins vegar nokkur munur milli svarendahópa. Starfið skiptir hér máli, eftir því sem hærra er klifið í metorðum, því hærri er einkunn fyrir starfsanda. Þau sem eru langskólagengin gefa hærri einkunn fyrir starfsanda en aðrir.
Ánægja með launakjörin minnkar frá síðasta ári en þá var einkunn fyrir þennan þátt sú hæsta frá upphafi, 3,52 af fimm mögulegum. Í ár var einkunnin sú næsthæsta sem gefin hefur verið fyrir launakjörin, 3,45. Hér er áhugavert að karlar eru mun ánægðari en konur og þau sem hafa skemmstan starfsaldur, skemur en eitt ár, eru ánægðust. Stjórnendur eru ánægðastir með sín laun og mesta ánægjan ríkir hjá starfsfólki í fjármálaþjónustu og annarri sérhæfðri þjónustu. Stærð fyrirtækis hefur áhrif hér, marktæk meiri ánægja ríkir með launakjör hjá þeim sem starfa hjá minnstu fyrirtækjunum, þar sem starfsfólk er færra en 30.
Einkunn fyrir vinnuskilyrði er einnig sú hæsta sem mælst hefur og hækkar frá síðasta ári, en þá hafði hún aldrei verið hærri. Þetta kemur e.t.v. á óvart í ljósi þess að margir unnu stóran hluta vinnu sinnar heima og hafa kannski ekki ákjósanlega vinnuaðstöðu. Þau sem mestu menntun hafa gefa hæstu einkunn fyrir þennan þátt. Þegar litið er til starfa er meiri ánægja meðal starfsfólk í hærra launuðum störfum og þá er mun meiri ánægja í fjármálageira og sérhæfðri þjónustu en öðrum atvinnugreinum. Að lokum má nefna að starfsfólk í smærri fyrirtækjum er marktækt ánægðast með vinnuskilyrði sín og starfsfólk í stærstu fyrirtækjunum, þar sem starfa 150 eða fleiri, er óánægðast.
Einkunn fyrir sveigjanleika í vinnu hefur verið mjög stöðug síðustu ár og eru litlar breytingar í ár. Yngsti aldurshópurinn er marktækt óánægðari með þennan þátt en aðrir aldurshópar. Þetta helst í hendur við afstöðu eftir starfsaldri en þeir sem hafa lengstan starfsaldur eru sáttastir. Háskólamenntaðir sérfræðingar eru ánægðastir með þann sveigjanleika sem þeir hafa í vinnu og enn og aftur er ánægjan mest í fyrirtækjum í fjármálum og sérhæfðri þjónustu.
Litlar sveiflur eru einnig í einkunn fyrir sjálfstæði í starfi. Með meiri reynslu og þekkingu (hærri starfsaldri) fylgir meira sjálfstæði í starfi. Meiri ánægja er með sjálfstæði í starfi í minnstu fyrirtækjum en þeim sem stærri eru.
Einkunn fyrir ímynd fyrirtækis hefur hækkað jafnt og þétt síðustu ár eftir dýfu í kjölfar hrunsins. Ímyndin fær 4,35 í einkunn að meðaltali í ár sem er það hæsta sem þessi þáttur hefur fengið. Hér er áhugavert að þau sem hafa stystan starfsaldur gefa hærri einkunn fyrir ímynd en aðrir og einkunnin er hærri hjá starfsfólki minnstu fyrirtækjanna en þeirra stærri. Það vekur athygli að iðnaðurinn fær hærri einkunn en flestar aðrar atvinnugreinar. Starfsfólk í verslun og þjónustu annars vegar og hinsvegar í samgöngum, flutningum og ferðaþjónustu gefur lægstu einkunn fyrir ímynd.
Þátturinn ánægja og stolt mælir ánægju og líðan í vinnu en einnig stolt af vinnustaðnum. Einkunn fyrir þennan þátt er óbreytt frá því í fyrra. Yngsti hópurinn gefur marktækt lægstu einkunn hér en sá elsti marktækt hæstu samanborið við aðra aldurshópa. Aftur sjáum við stjórnendur gefa hæstu einkunn sem og starfsfólk í fjármálafyrirtækjum og annarri sérhæfðri þjónustu. Starfsfólk í verslun og samgöngum flutningum og ferðaþjónustu gefur lægstu einkunn.
Síðasti þátturinn er jafnrétti en hann bættist við lykilþættina árið 2016. Einkunn fyrir þennan þátt hefur hækkað jafnt og þétt frá þeim tíma og er nú 4,45 af fimm mögulegum. Hér er munur á afstöðu eftir kyni, karlar gefa hærri einkunn en konur, en ekki er munur eftir aldri eða menntun. Stjórnendur gefa jafnrétti á vinnustaðnum hærri einkunn en aðrir og aftur er einkunnin hæst hjá fyrirækjum í fjármálaþjónustu og annarri sérhæfðri þjónustu. Áhugavert er að einkunn fyrir jafnrétti er hærri í stærri fyrirtækjum en þeim minni og er hún marktækt hæst í allra stærstu fyrirtækjunum þar sem starfa 150 eða fleiri.
Munur milli kynja
Karlar gefa marktækt hærri heildareinkunn en konur og einnig gefa þeir marktækt hærri einkunn fyrir fjóra af níu þáttum. Þetta eru þættirnir launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu og jafnrétti.
Hér að neðan sjá hvaða spurningar falla undir hvern þátt.
Þættirnir sem mynda mælingu á Fyrirtæki ársins 2022
-
Stjórnun
- Ég fæ stuðning og hvatningu frá næsta yfirmanni mínum.
- Næsti yfirmaður minn virðir starfsfólkið mikils.
- Næsti yfirmaður minn er sanngjarn við starfsfólk.
- Ég get leitað til næsta yfirmanns míns ef ég þarf á því að halda.
- Næsti yfirmaður minn sér um að ég hafi möguleika til að þroska hæfileika mína.
- Næsti yfirmaður minn bætir starfsaðstæður þegar þörf er á.
- Það er skýrt til hvers næsti yfirmaður minn ætlast til af mér.
- Á mínum vinnustað er starfsfólki hrósað þegar það stendur sig vel.
- Hversu vel eða illa telur þú að þínum vinnustað sé stjórnað?
- Ég ber fullt traust til stjórnenda fyrirtækisins.
-
Starfsandi
- Mér finnst starfsandinn venjulega vera afslappaður og óþvingaður.
- Samskipti eru opin og hispurslaus meðal samstarfsfólks míns.
- Mér kemur vel saman við samstarfsfólk mitt.
-
Launakjör
- Ánægja með launakjör.
- Laun starfsfólks stofnunarinnar eru ákveðin af sanngirni.
- Telur þú atvinnurekanda þinn veita betri, svipuð eða verri launakjör en gert er á öðrum sambærilegum vinnustöðum?
-
Vinnuskilyrði
- Ánægja með vinnuaðstöðu, þ.e. vinnu- eða skrifstofurými.
- Ánægja með lýsingu.
- Ánægja með loftræstingu.
- Ánægja með hljóðvist (ánægja eða óánægja með hljóð í rýminu).
- Ánægja með matar- og kaffiaðstöðu.
- Ánægja með öryggi á vinnustað.
- Ánægja með tölvu- og tækjabúnað.
-
- Ég get farið úr vinnu með litlum fyrirvara til að sinna aðkallandi erindum í einkalífi mínu.
- Ég hef svigrúm til að útrétta í vinnutímanum þegar nauðsyn krefur.
- Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
- Ég á auðvelt með að samræma vinnu og fjölskyldulíf.
- Ég á auðvelt með að taka sumarfrí/önnur frí á þeim tíma sem mér hentar.
-
Sjálfstæði í starfi
- Mér finnst ég hafa góð tök á öllum þáttum starfs míns.
- Mér finnst ég hafa næga yfirsýn yfir alla þá þætti sem krafist er af mér í starfi.
- Markmiðin með starfi mínu eru skýr.
- Þegar á heildina er litið hef ég mikil áhrif á hvernig starf mitt er unnið.
-
Ímynd fyrirtækis
- Þegar fyrirtækið sem ég starfa hjá ber á góma er sú umræða yfirleitt vinsamleg.
- Þegar á heildina er litið hafa viðskiptavinir jákvæða afstöðu til fyrirtækisins.
- Þegar á heildina er litið er fyrirtækið sem ég starfa hjá talin vera mjög traust.
-
Ánægja og stolt
- Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu.
- Á heildina litið líður mér vel í starfi mínu.
- Ég get mælt með vinnustaðnum sem góðum vinnustað við vini mína.
- Ég er stolt(ur) af fyrirtækinu sem ég starfa hjá.
-
- Á mínum vinnustað er lögð áhersla á jafnrétti kynjanna.
- Á mínum vinnustað er skýr stefna um jafnrétti kynja.
- Á mínum vinnustað finnst mér karlar og konur fá sömu tækifæri til starfsframa.
- Á mínum vinnustað er fólki ekki mismunað (t.d. eftir aldri, kyni, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga (t.d. hvað varðar aldur, kyn, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað eru bæði konur og karlar í ábyrgðarstöðum.
Happdrættið
Vinningsnúmerin eru:
1190377411, 613269924, 1630337259