Lykilþættirnir níu
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í innra starfsumhverfi fyrirtækja og má sjá þróun þeirra í töflunni hér að neðan. Gefin er einkunn fyrir hvern lykilþátt, frá einum og upp í fimm, og saman mynda þær heildareinkunn, annars vegar þeirra fyrirtækja sem birt eru á listum og svo heildareinkunn allra svarenda í könnuninni. Vægi þáttanna í heildareinkunn er misjafnt, stjórnun fyrirtækisins vegur þyngst (sjá umfjöllun um framkvæmdina).
Lykilþættirnir níu
![](/media/5565/driving-wheel-yellowat2x.png?width=100)
Stjórnun
Telja starfsmenn að vinnustaðnum sé vel stjórnað og bera þeir traust til yfirmanna?
![](/media/5570/teamwork-yellow-1at2x.png?width=100)
Starfsandi
Hvernig kemur starfsmönnum saman við aðra á vinnustaðnum?
![](/media/5573/pie-chart-yellow-1at2x.png?width=100)
Launakjör
Eru starfsmenn sáttir við laun sín?
![](/media/5567/052-coffee-machine-yellowat2x.png?width=100)
Vinnuaðstaðan
Öryggi, tækni, lýsing, hljóðvist, matar- og kaffiaðstaða o.s.frv.
![](/media/5571/three-arrows-yellowat2x.png?width=100)
Sveigjanleiki
Svigrúm til að taka frí, útrétta og samræma vinnu og fjölskyldulíf.
![](/media/5568/beating-heart-yellowat2x.png?width=100)
Sjálfstæði í starfi
Frumkvæði í starfi, yfirsýn, markmið og sjálfstraust.
![](/media/5569/ribbon-yellowat2x.png?width=100)
Ímynd fyrirtækisins
Upplifun starfsmanna af almennri umræðu um fyrirtækið.
![](/media/5566/happy-yellowat2x.png?width=100)
Ánægja og stolt
Eru starfsmenn stoltir af vinnustaðnum og líður þeim vel í vinnunni?
![](/media/5572/pie-chart-yellowat2x.png?width=100)
Jafnrétti
Hafa allir jöfn tækifæri, óháð aldri, kyni, uppruna, kynhneigð, trúar- eða lífsskoðunum?
Heildareinkunnin sýnir viðhorf starfsmanna almennt til vinnustaða sinna, meðaltal allra þáttanna níu sem sjá má að ofan. Hér má sjá hvaða spurningar falla undir hvern þátt. Heildareinkunn í töflunni hér að neðan er óháð stærð fyrirtækjanna og byggir á svörum allra sem tóku þátt í könnuninni, óháð því hvort fyrirtæki svarenda komust inn á lista fyrirtækjanna.
Þættirnir sem mynda mælingu á Fyrirtæki ársins 2021
-
Stjórnun
- Ég fæ stuðning og hvatningu frá næsta yfirmanni mínum.
- Næsti yfirmaður minn virðir starfsfólkið mikils.
- Næsti yfirmaður minn er sanngjarn við starfsfólk.
- Ég get leitað til næsta yfirmanns míns ef ég þarf á því að halda.
- Næsti yfirmaður minn sér um að ég hafi möguleika til að þroska hæfileika mína.
- Næsti yfirmaður minn bætir starfsaðstæður þegar þörf er á.
- Það er skýrt til hvers næsti yfirmaður minn ætlast til af mér.
- Á mínum vinnustað er starfsfólki hrósað þegar það stendur sig vel.
- Hversu vel eða illa telur þú að þínum vinnustað sé stjórnað?
- Ég ber fullt traust til stjórnenda fyrirtækisins.
-
Starfsandi
- Mér finnst starfsandinn venjulega vera afslappaður og óþvingaður.
- Samskipti eru opin og hispurslaus meðal samstarfsfólks míns.
- Mér kemur vel saman við samstarfsfólk mitt.
-
Launakjör
- Ánægja með launakjör.
- Laun starfsfólks stofnunarinnar eru ákveðin af sanngirni.
- Telur þú vinnuveitanda þinn veita betri, svipuð eða verri launakjör en gert er á öðrum sambærilegum vinnustöðum?
-
Vinnuskilyrði
- Ánægja með vinnuaðstöðu, þ.e. vinnu- eða skrifstofurými.
- Ánægja með lýsingu.
- Ánægja með loftræstingu.
- Ánægja með hljóðvist (ánægja eða óánægja með hljóð í rýminu).
- Ánægja með matar- og kaffiaðstöðu.
- Ánægja með öryggi á vinnustað.
- Ánægja með tölvu- og tækjabúnað.
-
- Ég get farið úr vinnu með litlum fyrirvara til að sinna aðkallandi erindum í einkalífi mínu.
- Ég hef svigrúm til að útrétta í vinnutímanum þegar nauðsyn krefur.
- Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
- Ég á auðvelt með að samræma vinnu og fjölskyldulíf.
- Ég á auðvelt með að taka sumarfrí/önnur frí á þeim tíma sem mér hentar.
-
Sjálfstæði í starfi
- Mér finnst ég hafa góð tök á öllum þáttum starfs míns.
- Mér finnst ég hafa næga yfirsýn yfir alla þá þætti sem krafist er af mér í starfi.
- Markmiðin með starfi mínu eru skýr.
- Þegar á heildina er litið hef ég mikil áhrif á hvernig starf mitt er unnið.
-
Ímynd fyrirtækis
- Þegar fyrirtækið sem ég starfa hjá ber á góma er sú umræða yfirleitt vinsamleg.
- Þegar á heildina er litið hafa viðskiptavinir jákvæða afstöðu til fyrirtækisins.
- Þegar á heildina er litið er fyrirtækið sem ég starfa hjá talin vera mjög traust.
-
Ánægja og stolt
- Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu.
- Á heildina litið líður mér vel í starfi mínu.
- Ég get mælt með vinnustaðnum sem góðum vinnustað við vini mína.
- Ég er stolt(ur) af fyrirtækinu sem ég starfa hjá.
-
- Á mínum vinnustað er lögð áhersla á jafnrétti kynjanna.
- Á mínum vinnustað er skýr stefna um jafnrétti kynja.
- Á mínum vinnustað finnst mér karlar og konur fá sömu tækifæri til starfsframa.
- Á mínum vinnustað rr fólki ekki mismunað (t.d. eftir aldri, kyni, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga (t.d. hvað varðar aldur, kyn, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað eru bæði konur og karlar í ábyrgðarstöðum.
Hækkandi heildareinkunn
Heildareinkunnin er, og hefur verið síðustu ár, hæst hjá fyrirtækjum í sérhæfðri þjónustu eða fjármálaþjónustu. Hún er lægst hjá fyrirtækjum í verslunarrekstri. Og sem fyrr gefa stjórnendur fyrirtækjum sínum almennt hærri einkunn en aðrir starfsmenn. Starfsfólk við sölu og afgreiðslu sem og í lager- og framleiðslustörfum gefur lægstu einkunnina. Og þá er heildareinkunn umtalsvert hærri í litlum fyrirtækjum en þeim stóru.
Heildareinkunn í ár er sú hæsta sem mælst hefur sem e.t.v. kemur á óvart í ljósi þess að könnunin var gerð í febrúar og mars 2021, í miðjum Covid faraldri. En það er í takt við niðurstöður könnunarinnar árið 2009, sem gerð var í kjölfar hrunsins, en þá hækkuðu allar einkunnir umtalsvert milli ára.
Einkunn fyrir átta af níu þáttum hækka í ár miðað við árið 2020, einkunn fyrir sveigjanleika í vinnu er eina einkunnin sem lækkar. Mestu hækkun má sjá fyrir launakjör, vinnuskilyrði og stjórnun. Heildareinkunnin sjálf fer úr 4,18 í 4,26 en hæsta mögulega einkunn er 5,0.
2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Heildareinkunn | 4,07 | 4,07 | 4,07 | 4,09 | 4,10 | 4,14 | 4,12 | 4,18 | 4,18 | 4,26 |
Stjórnun | 4,01 | 4,03 | 4,03 | 4,05 | 4,12 | 4,16 | 4,12 | 4,21 | 4,20 | 4,29 |
Starfsandi | 4,32 | 4,31 | 4,32 | 4,33 | 4,32 | 4,35 | 4,32 | 4,36 | 4,35 | 4,40 |
Launakjör | 3,19 | 3,20 | 3,20 | 3,20 | 3,28 | 3,31 | 3,30 | 3,36 | 3,40 | 3,52 |
Vinnuskilyrði | 4,02 | 4,03 | 4,04 | 4,03 | 3,94 | 4,00 | 3,98 | 4,06 | 4,04 | 4,13 |
Sveigjanleiki vinnu | 4,36 | 4,36 | 4,36 | 4,36 | 4,33 | 4,38 | 4,36 | 4,40 | 4,39 | 4,36 |
Sjálfstæði í starfi | 4,31 | 4,30 | 4,32 | 4,32 | 4,31 | 4,32 | 4,29 | 4,32 | 4,34 | 4,37 |
Ímynd fyrirtækis | 4,09 | 4,15 | 4,15 | 4,18 | 4,19 | 4,21 | 4,17 | 4,24 | 4,27 | 4,31 |
Ánægja & stolt | 4,22 | 4,21 | 4,21 | 4,22 | 4,23 | 4,26 | 4,21 | 4,28 | 4,29 | 4,35 |
Jafnrétti | 4,16 | 4,22 | 4,28 | 4,38 | 4,36 | 4,40 |
Happdrættið
Vinningsnúmerin eru:
21035909, 21002646, 21029862