Lykilþættirnir níu
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er spurt um viðhorf til níu lykilþátta í starfsumhverfinu. Þættina má sjá í töflunni hér að neðan. Gefin er einkunn fyrir hvern þátt, frá einum og upp í fimm, og saman mynda þær heildareinkunn, annars vegar þeirra fyrirtækja sem birt eru á listum og svo heildareinkunn allra svarenda. Vægi þáttanna í heildareinkunn er misjafnt, stjórnun fyrirtækisins vegur þyngst eða 15%, en starfsandi fylgir þar fast á eftir með 13% (sjá umfjöllun um framkvæmdina). Heildareinkunn hefur aldrei mælst hærri í könnun VR.
Lykilþættirnir níu
Stjórnun
Telja starfsmenn að vinnustaðnum sé vel stjórnað og bera þeir traust til yfirmanna?
Starfsandi
Hvernig kemur starfsmönnum saman við aðra á vinnustaðnum?
Launakjör
Eru starfsmenn sáttir við laun sín?
Vinnuaðstaðan
Öryggi, tækni, lýsing, hljóðvist, matar- og kaffiaðstaða o.s.frv.
Sveigjanleiki
Svigrúm til að taka frí, útrétta og samræma vinnu og fjölskyldulíf.
Sjálfstæði í starfi
Frumkvæði í starfi, yfirsýn, markmið og sjálfstraust.
Ímynd fyrirtækisins
Upplifun starfsmanna af almennri umræðu um fyrirtækið.
Ánægja og stolt
Eru starfsmenn stoltir af vinnustaðnum og líður þeim vel í vinnunni?
Jafnrétti
Hafa allir jöfn tækifæri, óháð aldri, kyni, uppruna, kynhneigð, trúar- eða lífsskoðunum?
Hér að neðan má sjá þróun lykilþátta síðustu ár. Athugið að hér er miðað við svör allra sem tóku þátt í könnuninni, ekki eingöngu starfsmanna þeirra fyrirtækja sem komust á lista. Heildareinkunnin sýnir viðhorf starfsmanna almennt til sinna vinnustaða. Heildareinkunn er lægst hjá fyrirtækjum í samgöngum og flutningum en hæst hjá fyrirtækjum í séhæfðri þjónustu. Hún er hærri hjá minni fyrirtækjum en þeim stærri, lægst hjá þeim allra stærstu þar sem starfsmenn eru yfir 150 talsins.
Heildareinkunn hefur ekki mælst hærri í könnuninni og á það einnig við um nokkra af lykilþáttunum. Ánægja með starfsanda, launakjör og ímynd fyrirtækis hefur mælst hærri og meiri ánægja var með sjálfstæði í starfi fyrir nokkrum árum. Viðhorf til lykilþáttanna eru mjög mismunandi eftir starfsheiti og atvinnugrein. Almennt eru stjórnendur ánægðari en aðrir starfsmenn með nánast alla lykilþætti, nema þegar kemur að ánægju með sveigjanleika vinnunnar. Starfmenn við akstur, lager og framleiðslu eru óánægðari en aðrir hvað flesta lykilþætti varðar. Þegar litið er til aldurs má sjá að þeir sem eru eldri eru iðulega ánægðari en þeir yngri.
Hér að neðan má sjá þróun einkunna frá árinu 2011. Athugið að þessar einkunnir byggja á svörum allra þeirra sem tóku þátt í könnuninni, ekki einungis þeirra fyrirtækja sem náðu inn á lista. Hér er því um að ræða svör rúmlega tólf þúsund manna á almennum vinnumarkaði. Jafnrétti var fyrst mælt sem lykilþáttur árið 2016 og hefur hækkað jafnt og þétt síðan. Einkunn fyrir vinnuskilyrði sveiflast mest á tímabilinu sem hér er sýnt og ímynd fyrirtækja tekur einnig nokkrum breytingum milli ára.
2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Heildareinkunn | 4,05 | 4,07 | 4,07 | 4,07 | 4,09 | 4,10 | 4,14 | 4,12 | 4,18 |
Stjórnun | 4,02 | 4,01 | 4,03 | 4,03 | 4,05 | 4,12 | 4,16 | 4,12 | 4,21 |
Starfsandi | 4,32 | 4,32 | 4,31 | 4,32 | 4,33 | 4,32 | 4,35 | 4,32 | 4,36 |
Launakjör | 3,16 | 3,19 | 3,20 | 3,20 | 3,20 | 3,28 | 3,31 | 3,30 | 3,36 |
Vinnuskilyrði | 4,03 | 4,02 | 4,03 | 4,04 | 4,03 | 3,94 | 4,00 | 3,98 | 4,06 |
Sveigjanleiki vinnu | 4,26 | 4,36 | 4,36 | 4,36 | 4,36 | 4,33 | 4,38 | 4,36 | 4,40 |
Sjálfstæði í starfi | 4,33 | 4,31 | 4,30 | 4,32 | 4,32 | 4,31 | 4,32 | 4,29 | 4,32 |
Ímynd fyrirtækis | 4,06 | 4,09 | 4,15 | 4,15 | 4,18 | 4,19 | 4,21 | 4,17 | 4,24 |
Ánægja & stolt | 4,22 | 4,22 | 4,21 | 4,21 | 4,22 | 4,23 | 4,26 | 4,21 | 4,28 |
Jafnrétti | 4,16 | 4,22 | 4,28 | 4,38 |
Þættirnir sem mynda mælingu á Fyrirtæki ársins 2019
-
Stjórnun
- Ég fæ stuðning og hvatningu frá næsta yfirmanni mínum.
- Næsti yfirmaður minn virðir starfsfólkið mikils.
- Næsti yfirmaður minn er sanngjarn við starfsfólk.
- Ég get leitað til næsta yfirmanns míns ef ég þarf á því að halda.
- Næsti yfirmaður minn sér um að ég hafi möguleika til að þroska hæfileika mína.
- Næsti yfirmaður minn bætir starfsaðstæður þegar þörf er á.
- Það er skýrt til hvers næsti yfirmaður minn ætlast til af mér.
- Á mínum vinnustað er starfsfólki hrósað þegar það stendur sig vel.
- Hversu vel eða illa telur þú að þínum vinnustað sé stjórnað?
- Ég ber fullt traust til stjórnenda fyrirtækisins.
-
Starfsandi
- Mér finnst starfsandinn venjulega vera afslappaður og óþvingaður.
- Samskipti eru opin og hispurslaus meðal samstarfsfólks míns.
- Mér kemur vel saman við samstarfsfólk mitt.
-
Launakjör
- Ánægja með launakjör.
- Laun starfsfólks stofnunarinnar eru ákveðin af sanngirni.
- Telur þú vinnuveitanda þinn veita betri, svipuð eða verri launakjör en gert er á öðrum sambærilegum vinnustöðum?
-
Vinnuskilyrði
- Ánægja með vinnuaðstöðu, þ.e. vinnu- eða skrifstofurými.
- Ánægja með lýsingu.
- Ánægja með loftræstingu.
- Ánægja með hljóðvist (ánægja eða óánægja með hljóð í rýminu).
- Ánægja með matar- og kaffiaðstöðu.
- Ánægja með öryggi á vinnustað.
- Ánægja með tölvu- og tækjabúnað.
-
- Ég get farið úr vinnu með litlum fyrirvara til að sinna aðkallandi erindum í einkalífi mínu.
- Ég hef svigrúm til að útrétta í vinnutímanum þegar nauðsyn krefur.
- Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þann sveigjanleika sem þú hefur í vinnunni?
- Ég á auðvelt með að samræma vinnu og fjölskyldulíf.
- Ég á auðvelt með að taka sumarfrí/önnur frí á þeim tíma sem mér hentar.
-
Sjálfstæði í starfi
- Mér finnst ég hafa góð tök á öllum þáttum starfs míns.
- Mér finnst ég hafa næga yfirsýn yfir alla þá þætti sem krafist er af mér í starfi.
- Markmiðin með starfi mínu eru skýr.
- Þegar á heildina er litið hef ég mikil áhrif á hvernig starf mitt er unnið.
-
Ímynd fyrirtækis
- Þegar fyrirtækið sem ég starfa hjá ber á góma er sú umræða yfirleitt vinsamleg.
- Þegar á heildina er litið hafa viðskiptavinir jákvæða afstöðu til fyrirtækisins.
- Þegar á heildina er litið er fyrirtækið sem ég starfa hjá talin vera mjög traust.
-
Ánægja og stolt
- Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu.
- Á heildina litið líður mér vel í starfi mínu.
- Ég get mælt með vinnustaðnum sem góðum vinnustað við vini mína.
- Ég er stolt(ur) af fyrirtækinu sem ég starfa hjá.
-
- Á mínum vinnustað er lögð áhersla á jafnrétti kynjanna.
- Á mínum vinnustað er skýr stefna um jafnrétti kynja.
- Á mínum vinnustað finnst mér karlar og konur fá sömu tækifæri til starfsframa.
- Á mínum vinnustað rr fólki ekki mismunað (t.d. eftir aldri, kyni, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga (t.d. hvað varðar aldur, kyn, uppruna, kynhneigð eða trúar- eða lífsskoðun).
- Á mínum vinnustað eru bæði konur og karlar í ábyrgðarstöðum.
Happdrættið
Búið er að draga í happdrættinu í tengslum við könnunina á Fyrirtæki ársins og launum 2019. Í vinning voru tvö gjafabréf með Icelandair og fimm miðar fyrir tvo á Airwaves hátíðina í haust. Búið er að hafa samband við vinningshafana.
Vinningsnúmerin eru:
142681, 140696, 115994, 118332, 104946, 101069 og 129161