VR blaðið

29.02.2024

1. tbl. VR blaðsins 2024

Fyrsta tölublað VR blaðsins fyrir árið 2024 er komið út og er því dreift til félagsfólks með pósti. Tölublaðið er að mestu helgað kosningum í félaginu en að þessu sinni eru 13 frambjóðendur að bjóða sig fram til stjórnar félagsins. Nánari upplýsingar um kosningarnar og frambjóðendur eru á síðum 16-24 í blaðinu.
Björn Berg, fjármálaráðgjafi og fyrirlesari, fjallar um heimilisfjármálin og hvaða reglur við getum tileinkað okkur til að halda fjármálunum sem öruggustum. Sjá nánar hér.
Yfir helmingur allra VR félaga hefur orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi á ferlinum. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem félagið lét gera meðal 30.000 VR félaga á haustmánuðum 2023. Nánar er fjallað um könnunina hér.

VR/LÍV og Samtök verslunar og þjónustu gerðu með sér samstarfssamning um að vinna markvisst að hæfniaukningu starfsfólks í verslun og þjónustu til ársins 2030. Fjallað er um samninginn hér.

Kjaramálasvið VR svarar algengum spurningum um uppsagnarfrest í blaðinu og má lesa nánar um það hér.
Leiðari formanns, viðtal við trúnaðarmann og krossgátan eru að sjálfsögðu á sínum stað í blaðinu auk ýmiss annars fróðleiks.

05.10.2023

2. tbl. VR blaðsins 2023

Annað tölublað ársins 2023 af VR blaðinu er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir komið að uppgjöri þjóðar gegn óréttlæti, misskiptingu og spillingu í grein sem hann skrifar í blaðið. Hátt vaxtastig hefur ýtt meginþorra kaupenda út í verðtryggð lán en í blaðinu er farið yfir nokkur atriði varðandi húsnæðislán.

Fjögurra daga vinnuvika er framtíðin en í komandi kjaraviðræðum gera VR og LÍV þá kröfu að vinnuvikan verði stytt í fjóra daga eða sem svarar til 32 stundum á viku. Farið er yfir málið í blaðinu. Bjarni Þór Sigurðsson, formaður húsnæðisnefndar VR, fjallar um fyrsta verkefni Blævar en fyrsta skóflustunga að nýjum íbúðahúsum félagsins var tekin í Úlfarsárdal í sumar. Farið er yfir viðræðuáætlun VR/LÍV við Samtök atvinnulífsins í blaðinu en kjarasamningar renna út þann 31. janúar næstkomandi.

Leiðari formanns, krossgátan og viðtal við trúnaðarmann eru á sínum stað í blaðinu.

02.03.2023

1. tbl. VR blaðsins 2023

Fyrsta tölublað ársins af VR blaðinu er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Í þessu fyrsta tölublaði ársins beinum við sjónum okkar að kosningum í félaginu tvö eru í framboði til formanns og 16 til stjórnar. Í blaðinu er að finna kynningu á nýjum kjarasamningum og næstu skref í viðræðuáætlun milli aðila vinnumarkaðarins. Bjarni Þór Sigurðsson, formaður húsnæðisnefndar VR, skrifar um húsnæðismál og leigufélögin Blæ og Bjarg. Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir skrifar í grein sinni „Seigla og streita – músíkalskt par!“ hvernig nýta megi streitu til góðs.

Þá fjallar Tómas Bjarnason, sviðsstjóri hjá Gallup, um hvernig dregið hefur úr mikilvægi vinnunnar samkvæmt niðurstöðum úr tveimur könnunum sem gerðar voru meðal félagsfólks VR árin 2012 og 2022. Guðrún Johnsen, ráðgjafi hjá danska Seðlabankanum, skrifar einnig grein í blaðið þar sem hún fjallar um hvernig nýta megi helming mannauðs með skilvirkari hætti. Sigmundur Halldórsson, starfskraftur Landssambands íslenzkra verzlunarmanna fjallar um mikilvægi stéttarfélaga eftir heimsfaraldurinn.

Leiðari ritstjóra, krossgátan og viðtal við trúnaðarmann VR á vinnustað eru að sjálfsögðu á sínum stað í blaðinu auk ýmiss annars fróðleiks.

19.09.2022

2. tbl. VR blaðsins 2022

Annað tölublað ársins 2022 af VR blaðinu er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Í blaðinu er kröfugerð VR gagnvart Samtökum atvinnulífsins birt í heild sinni en núverandi kjarasamningur rennur út þann 1. nóvember næstkomandi. Áhersla er lögð á kjaramál í blaðinu en fjallað er um vinnustöðvun og verkföll og veikindarétt í fjarvinnu svo eitthvað sé nefnt. Þá fer Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR yfir stöðuna í húsnæðismálum en VR hefur tekið forystu í þeim málaflokki innan verkalýðshreyfingarinnar. Í aðdraganda kjarasamninga er stiklað á helstu hugtökum sem gott er að þekkja og farið yfir skilgreiningar þeirra.

Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, fjallar um heilbrigð mörk á vinnustöðum og þau ýmsu atriði sem geta hjálpað okkur við að skilja og vinna með þessi mörk.

45. sambandsþing ASÍ verður haldið í október og er farið yfir helstu áhersluatriði sambandsins í blaðinu.

Fastir liðir eru á sínum stað í blaðinu, leiðari formanns, viðtal við trúnaðarmann og krossgátan.

11.03.2022

1 tbl. VR blaðsins 2022

Fyrsta tölublað VR blaðsins árið 2022 er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Í þessu fyrsta tölublaði höldum við áfram umfjöllunum um þriðju vaktina en Valgerður Bjarnadóttir og Andrea Hjálmsdóttir eiga grein í blaðinu sem ber heitið „Þriðja vaktin, mæður og kórónaveirufaraldurinn.“ Þá er einnig að finna viðtal við þær Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur og Sigurlaugu Guðrúnu Jóhannsdóttur en þær ætla að gefa út smáforrit sem aðstoðar fólk við að skipuleggja heimilisstörfin, en hugmyndin að forritinu vann Gulleggið árið 2020. Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar grein í blaðið sem ber heitið „Hægjum á í auknum hraða fyrir meiri sköpunargleði“ en Birna Dröfn hefur rannsakað hvernig efla megi sköpunargleði á meðal starfsfólks og hefur þjálfað hundruðir einstaklinga og fyrirtæki í sköpunargleði.

Ert þú að huga að starfsþróun? VR býður félagsfólki sínu upp á starfsþróunarráðgjöf hjá Mími símenntun en VR blaðið tók náms- og starfsráðgjafa hjá Mími tali og ræddi einnig við VR félaga sem hefur nýtt sér ráðgjöfina. Í blaðinu er að finna hvatningu til félagsfólks til að taka þátt í könnun VR á Fyrirtæki ársins en könnunin stendur yfir til 21. mars og geta heppnir svarendur unnið glæsilega vinninga, meðal annars rafmagnshlaupahjól og Iphone 13. Í blaðinu má lesa um það hvernig tveir VR félagar nýta styttingu vinnuvikunnar, en styttingin tók gildi 1. janúar 2020. Hvernig verða kjarasamningar til? Þú kemst að því með því að lesa blaðið! Sjá nánar hér.

Leiðari formanns, krossgátan og viðtal við trúnaðarmann VR eru að sjálfsögðu á sínum stað í blaðinu auk ýmiss annars fróðleiks. Útgáfa VR blaðsins verður með breyttu sniði í ár en í stað fjögurra tölublaða verða gefin út tvö tölublöð. Félagið vill með þessu auka áherslu á upplýsingatengt efni á vef sínum vr.is og öðrum miðlum félagsins.

Viltu fá blaðið sent rafrænt til þín? Skráðu þig fyrir rafrænu eintaki á Mínum síðum.

29.11.2021

4. tbl. VR blaðsins 2021

Síðasta tölublað ársins af VR blaðinu er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Í blaðinu kennir ýmissa grasa en eins og alltaf á þessum árstíma minnum við á réttindi félagsfólks í jólaösinni og má finna góðar upplýsingar um þau í blaðinu. Í blaðinu má finna umfjöllun um þriðju vaktina og viðtal við Huldu Jónsdóttur Tölgyes, sálfræðing. Þrír VR félagar segja frá því hvaða leið þeir fóru til þess að sækja um styrk í Starfsmenntasjóðnum en leiðirnar eru þrjár; félagi sækir sjálfur um, fyrirtækið sækir um eða félagi og fyrirtæki sækja um sameiginlegan styrk í sjóðinn.

Hvað er raunfærnimat? Þú kemst að því í blaðinu! Með raunfærnimati fær einstaklingur staðfestingu á þeirri færni sem hann býr yfir og þannig opnast möguleikar á að meta færni til dæmis til styttingar náms eða til stuðnings við að efla sig enn frekar í starfi.
Þá er verslunarfólk í Kringlunni tekið tali og það spurt út í jólaverslunina og uppáhalds jólahefðina. Fastir liðir eins og venjulega eru á sínum stað í blaðinu, leiðari formanns, viðtal við trúnaðarmann og krossgátan.

Viltu fá blaðið sent rafrænt til þín? Skráðu þig fyrir rafrænu eintaki inni á Mínum síðum.

27.09.2021

3. tbl. VR blaðsins 2021

Þriðja tölublað VR blaðsins 2021 er komið út og er því dreift til félagsmanna í pósti. Í blaðinu má meðal annars finna umfjöllun um könnun sem VR gerði meðal félagsmanna um fjarvinnu á tímum Covid-19. Í blaðinu er hagvaxtarauki skoðaður en í kjarasamningum 2019 var í fyrsta skipti samið um slíkan viðauka sem tæki mið af stöðu hagkerfisins.

Þá er fjallað um atvinnulýðræði í blaðinu en VR hélt ráðstefnu á dögunum þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar fjölluðu um slíkt fyrirkomulag á vinnustöðum. Hægt er að horfa á erindin frá ráðstefnunni á vr.is/atvinnulydraediRætt er við Evu Karen Þórðardóttur en hún hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Stafræna hæfniklasans. Nýlega hófu VR og 1819 Torgið samstarf sem gerir afsláttarkjör fyrir félagsfólk VR aðgengilegri og þægilegri í notkun. Ekki þarf lengur að fletta tilboðum upp á vef og sýna félagsskírteini til að virkja afslætti heldur verða tilboðin nú öll á einum stað innan seilingar í snjallsímum félagsfólks. Krossgátan, viðtal við trúnaðarmann og leiðari formanns eru að sjálfsögðu á sínum stað í blaðinu.

Viltu fá blaðið sent rafrænt til þín? Skráðu þig fyrir rafrænu eintaki inni á Mínum síðum.

03.06.2021

2. tbl. VR blaðsins 2021

Annað tölublað VR blaðsins fyrir árið 2021 er komið út og er því dreift til félagsfólks í pósti. Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, var endurkjörinn formaður VR í mars síðastliðnum en kjörsókn var með mesta móti. Ritstjóri VR blaðsins ræddi við Ragnar Þór um verkefni formanns og stjórnar á nýju kjörtímabili.

Auður Böðvarsdóttir, mannauðssérfræðingur, fjallar um jafnlaunavottunina og þann ávinning fyrirtækis og starfsfólks sem getur hlotist af því að innleiða vottunina, sé rétt að málum staðið. Í blaðinu er rætt við þrjá mannauðsstjóra um fjarvinnu starfsfólks og segja þau okkur frá því hvernig var staðið að hlutunum hjá þeirra fyrirtækjum. Þá spyr Ingrid Kuhlman hvort dagar skrifstofurýma séu taldir í grein sinni um fjarvinnu og fer yfir kosti og áskoranir slíks fyrirkomulags.

Hvað er hægt að gera til að aðlagast betur stafrænum heimi? Svörin er að finna í greininni „Stafræn þróun og starfið mitt“. Í blaðinu er fjallað um atvinnuráðgjöf sem VR hefur boðið félagsfólki sínu undanfarin misseri og farið yfir hvað felst í þjónustunni. Í blaðinu er einnig umfjöllun um Fyrirtæki ársins 2021 en þau voru kynnt á vef félagsins þann 17. maí. Vegna samkomutakmarkana var vinningsfyrirtækjunum ekki boðið öllum saman til móttöku eins og hefð er fyrir. Þess í stað var hverjum stærðarflokki fyrir sig boðið til móttöku um miðjan dag þann 17. maí þar sem niðurstöðurnar voru kynntar, viðurkenningar Fyrirmyndarfyrirtækja afhentar og verðlaunagripurinn fyrir Fyrirtæki ársins. Fastir liðir eru á sínum stað í blaðinu, leiðari formanns, viðtal við trúnaðarmann og krossgátan.

Við minnum félagsfólk á að það getur afþakkað blaðið í prentaðri útgáfu og skráð sig fyrir rafrænu eintaki á Mínum síðum.

 

03.03.2021

1. tbl. VR blaðsins 2021

Fyrsta tölublað VR blaðsins 2021 er komið út og er því dreift til félagsmanna í pósti. Í þessu fyrsta tölublaði ársins beinum við sjónum okkar að kosningum í félaginu en tvö einstaklingsframboð eru til formanns VR, það eru framboð sitjandi formanns Ragnars Þórs Ingólfssonar og Helgu Guðrúnar Jónasdóttur. Einnig eru 11 einstaklingar í kjöri til stjórnar VR fyrir tímabilið 2021-2023. Nánari upplýsingar um frambjóðendur og kosningarnar má finna á bls. 16.

Félagsmenn eru minntir á könnun VR á Fyrirtæki ársins, nánari upplýsingar er að finna í þessu nýjasta tölublaði VR blaðsins. Fastir liðir eins og venjulega í blaðinu eru á sínum stað eins og leiðari blaðsins, viðtal við trúnaðarmann og krossgátan.

Viltu fá blaðið sent rafrænt til þín? Skráðu þig fyrir rafrænu eintaki inni á Mínum síðum.

04.12.2020

4. tbl. VR blaðsins 2020

Jólablað VR blaðsins er komið út og er því dreift til félagsmanna með pósti. Í þessu síðasta tölublaði ársins er fjallað um atvinnuráðgjöf sem VR býður félagsmönnum sínum þeim að kostnaðarlausu. Auk ráðgjafar mun VR fara af stað með nýjung, svokölluð „Hádegisráð VR“ sem verða stuttir rafrænir fyrirlestrar sem ætlaðir eru að koma atvinnuleitendum að góðum notum. Magnús L. Sveinsson, fyrrum formaður VR, er í viðtali í VR blaðinu, en hann hefur gefið út bók „Af moldargólfi í ólgusjó verkalýðsmála“ þar sem félagið kemur mikið við sögu, enda starfaði Magnús hjá VR í 42 ár. Þá er einnig viðtal í blaðinu við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, um það helsta sem er á döfinni hjá félaginu og er Ragnar Þór meðal annars inntur eftir því hvort hann ætli að gefa kost á sér í formannskjöri félagsins á næsta ári.

Á þessum árstíma er mikilvægt að huga að réttindum sínum og skyldum á vinnumarkaðnum enda jólaverslunin í algleymingi.

Við minnum félagsmenn á að þeir geta afþakkað blaðið í prentaðri útgáfu og skráð sig fyrir rafrænu eintaki á Mínum síðum.